Skilmálar

 

Greiðslufyrirkomulag

Trendland áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.


Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar 1-4 dögum eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti og TVG Zimsen Express gilda
afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts og TVG Zimsen.Afhending vöru  ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Trendland til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

Eftir að viðskiptavinur hefur gert og gengið frá pöntun á trendland.is fær hann og trendland.is staðfestingu um pöntunina á tölvupósti. Venjulegur afhendingarferill er 1-4 virkur dagar nema að annað sé tekið fram við lýsingu á vöru.  Flestar pantanir eru sendar með tvg Zimsen  pantanir eru sendar með TVG Zimsen .. 

Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer
fram.  Sendingakostnaður er Kr.990. Ef að verslað er fyrir t.d. 15.000,- eða meira þá fellur sendingarkostnaðurinn niður. Við bjóðum gjarnan uppá tilboð þar sem við fellum niður sendingarkostnað.

Eftir að viðskiptavinur hefur gert og gengið frá pöntun á trendland.is fær hann og trendland.is staðfestingu um pöntunina á tölvupósti. Venjulegur afhendingarferill er 1-4 virkur dagar nema að annað sé tekið fram við lýsingu á vöru.  

Að skipta og skila vöru
Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu
umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð
vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar
verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Útsöluvörum er ekki hægt að skila.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Tekið er á móti greiðslum kredit og debitkorta í gegnum öruggt greiðslusvæði þar sem kortanúmer eru dulkóðuð. Tekið skal fram að trendland.is geymir ekki né tekur á móti kortanúmerum, allar slíkar upplýsingar fara í gegnum öruggt greiðslusvæði hjá viðurkenndum þjónustuaðilaUpplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur

Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.